Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Mynd: gsimyndir.net Birgir Leifur lék á 73 á 2. degi úrtökumótsins
Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, er eini íslenski kylfingurinn, sem komst á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina, en mótið fer fram á PGA Catalunya golfvellinum, í Girona á Spáni. Spilað er á tveimur völlum: Stadium og Tour völlunum.
Birgir Leifur lék á Tour vellinum í dag og kom í hús á 3 yfir pari, 73 höggum; var með 3 fugla, 4 skolla og 1 tvöfaldan skolla.
Samtals er Birgir Leifur því á 5 yfir pari, 147 höggum (74 73).
Efsti maður mótsins er „Íslandsvinurinn“ Anhirban Lahiri frá Indlandi, sem m.a. lék Brautarholtsvöll í sumar. Lahiri hefir áður spilað á Evrópumótaröðinni, líkt og margir þátttakenda úrtökumótsins og er á samtals 9 undir pari, 133 höggum (65 68).
Það eru 25 efstu sem fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni og sem stendur er Birgir Leifur býsna langt frá því marki en hann deilir 130. sæti.
Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á úrtökumótinu í Girona SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
