Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2014 | 18:00

GG: Opið mót á Húsatóftavelli n.k. sunnudag

Golfklúbbur Grindavíkur stendur fyrir opnu móti á Húsatóftavelli sunnudaginn 16. nóvember næstkomandi. Leikið verður inn á sumarflatir af hefðbundum teigum vallarins. Um er að ræða frábært tækifæri til að leika golf við fínustu aðstæður í nóvember á Íslandi en völlurinn er enn í frábæru ásigkomulagi þrátt fyrir að vetur konungur sé farinn að banka á dyrnar. Flatirnar eru enn frábærar líkt og í sumar.

Mótið er opið punktamót þar sem veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Veitt verða verðlaun fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Nándarverðlaun á 7. og 18. braut. Þátttökugjald er 3.500 kr.- og fylgir rjúkandi heitur kaffibolli með.

Verðlaun:
1. sæti í höggleik – Gjafabréf frá Nettó*
1. sæti í punktakeppni – Gjafabréf frá Nettó
2. sæti í punktakeppni – Gjafabréf frá Nettó
3. sæti í punktakeppni – Gjafabréf frá Nettó

Nándarverðlaun á 7. og 18. braut – Gjafabréf frá Nettó
*Nánar verður tilkynnt um verðlaun í mótinu síðar

Að sögn vallarstjóra er Húsatóftavöllur lítið sem ekkert blautur þrátt og er tilvalið að renna við í Grindavík og leika golf við frábærar aðstæður. Heitt verður á könnunni í skálanum.

Skráning á golf.is

Mótanefnd áskilur sé rétt til að fresta mótinu sé veður ekki gott eða ekki nóg þátttaka.