Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Alex Čejka (34/50)
Alexander Čejka er sá 18. af 50 til þess að hljóta kortið sitt á PGA Tour keppnistímabilið 2014-2015.
Alexander Čejka fæddist 2. desember 1970 í Mariánské Lázně, í gömlu Tékkóslóvakíu og er því 41 árs í dag.
Čejka fór frá Tékkóslóvakíu með foreldrum sínum 9 ára gamall og bjuggu þau í München í Þýskalandi í mörg ár áður en þau 3 ákváðu að gerast þýskir ríkisborgarar.
Čejka býr í dag í Las Vegas, Nevada en á annað heimili í Prag.
Čejka gerðist atvinnumaður 1989 aog spilaði á Evróputúrnum á árunum 1992 – 2002. Stærsti sigur hans til dagsins í dag er sigur hans á Volvo Masters á Valderrama árið 1995. Þetta árið varð hann í 6. sæti á peningalista Evróputúrsins. Frá árinu 2003 hefir Čejka aðallega spilað á PGA Tour. Árið 2003 komst hann svo hátt sem að verða nr. 33 á heimslistanum.
Eftirminnilegur er leikur Čejka á Players Championship árið 2009. Eftir hringi upp á 66 67 og 72 var hann með 5 högga forskot fyrir lokahringinn. Hann var hins vegar á 42 höggum fyrri 9 og lauk lokahringnum á 79 höggum og var 8 höggum á eftir sigurvegaranum Henrik Stenson.
Čejka hefir verið fulltrúi Þjóðverja á the Omega Mission Hills World Cup 11 sinnum, síðast árið 2011 í Mission Hills, Haikou á Hainan eyju í Kína, þar sem hann var í liði með Martin Kaymer og þeir urðu T-2, tveimur höggum á eftir sigurliði Bandaríkjanna sem samanstóð af Matt Kuchar og Gary Woodland. Čejka hefir spilað með Kaymer í síðustu 4 heimsmótum f.h. Þjóðverja.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
