Birgir Leifur í 16. sæti e. 3. daginn í Valencía
Íslensku keppendurnir 3 á 2. stigi úrtökumótsins á El Saler vellinum í Valencía, á Spáni hafa allir lokið keppni, í dag á 3. degi mótsins.
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lék best Íslendinganna í dag var á sléttu pari, 72 höggum og er sem stendur T-16 þ.e. deilir 16. sætinu með 2 öðrum kylfingum.
Í dag fékk Birgir Leifur 4 fugla og 4 skolla, slétt par árangurinn. Birgir Leifur dansar á línunni að komast áfram á lokastigið en 17 efstu af þessu úrtökumóti, sem er 1 af 4 á 2. stiginu, fá að spila á lokaúrtökumótinu.
Ólafur Björn Loftsson, NK, er sem stendur í 48. sæti, er samtals búinn að spila á 7 yfir pari, 223 höggum (75 71 77), en hann átti vonbrigðahring upp á 5 yfir pari í dag.
Þórður Rafn Gissurarson, GR, bætti sig um 2 högg frá 2. deginum og er búinn að spila á samtals 19 yfir pari (83 77 75) og er í neðsta sæti.
Til þess að sjá stöðuna á El Saler á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
