Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2014 | 16:30

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnhildur Kristjánsdóttir – 9. nóvember 2014

Það er Gunnhildur Kristjánsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Gunnhildur er fædd 9. nóvember 1996 og því 18 ára í dag!!! Hún er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og spilar golf með golfliði Elon í bandaríska háskólagolfinu.

Golflið Elon - Gunnhildur er 3. frá vinstri. Mynd: Elon

Golflið Elon – Gunnhildur er 3. frá vinstri. Mynd: Elon

Gunnhildur er glæsilegur kylfingur og hefir vel staðið undir því að hafa verið valin efnilegasti kylfingur Garðabæjar af ÍTG, 8. janúar 2013.

Gunnhildur hefir margoft verið fulltrúi Íslands í mótum erlendis m.a. tók hún þátt í Lalandia Open í Danmörku 2012 og varð í 1. sæti;  eins tók Gunnhildur þátt í Irish Girls Open, sem fram fór  á golfvelli  Roganstown Golf & Country Club, rétt fyrir utan Dublin á Írlandi 20.-21. apríl 2013. Hún varð í 43. sæti af 71 keppanda.

Í júní 2013 setti Gunnhildur m.a. vallarmet á Úthlíðarvelli.

Nú í ár spilaði Gunnhildur á Eimskipsmótaröðinni.  Á 1. mótinu á Eimskipsmótaröðinni í ár varð Gunnhildur í 11. sæti af konunum; á því næsta að Hellu varð Gunnhildur í 12. sæti og á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Leirdalsvelli varð Gunnhildur í 10. sæti.

Á uppskeruhátíð barna- og unglinga hjá GKG hlaut Gunnhildur verðlaun fyrir framúrskarandi árangur stúlkna, fyrir að hafa verið í fararbroddi unglingsstúlkna í GKG undanfarin ár, fyrir að hafa aftur keppt á Irish Girls Open, og eins fyrir að hafa  þá verið komin með golfskólastyrk í Elon háskóla í Bandaríkjunum.

Sjá má eldra viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:  Komast má  á facebook síðu Gunnhildar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan

Gunnhildur Kristjánsdóttir (18 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Tom Weiskopf, 9. nóvember 1942 (72 ára);  Karin Mundinger, 9. nóvember 1959 (55 ára);  David Duval, 9. nóvember 1971 (43 ára) ….. og ……

Zúzanna Korpak, GS, (14 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is