Ágæt byrjun hjá Birgi Leif
Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lék fyrsta hring á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina á El Saler vellinum í Valencía, á Spáni í dag á 1 yfir pari, 73 höggum.
Sem stendur er hann í T-8 af þeim 19 sem þegar hafa lokið keppni, en þátttakendur í mótinu eru 73.
Meðal þeirra sem eftir eiga að ljúka leik eru Ólafur Björn, NK og Þórður Rafn, GR.
Leikið er á 3 öðrum úrtökumótum á 2. stigi víðsvegar um Spán og keppendur því rúmlega 280.
Gríðarlega sterkir keppendur eru á þessu úrtökumóti og margir sem leikið hafa á Evrópumótaröðinni. Þeirra á meðal eru t.a.m. menn á borð við Spánverjana Alfredo Garcia-Heredia og Manuel Quiros, Skotana Elliot Saltman, Jack Doherty og Wallace Booth (sem er bróðir Carly Booth, sem spilar á LET); Frakkann Alexandre Kaleka og Danann Andreas Hartö.
Fylgjast má með strákunum okkar 3 og stöðunni á El Saler með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
