GKJ´s signarture hole the par-4 4th hole at Hliðarvöllur. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2014 | 14:00

GKJ & GOB: Kosning um sameiningu

Á heimasíðu Golfklúbbs Bakkakots má sjá eftirfarandi frétt:

„Stjórnir Golfklúbbsins Kjalar og Golfkúbbs Bakkakots hafa náð samkomulagi um að leggja fram tillögu um sameiningu klúbbanna undir merkjum Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Klúbbarnir munu núna í framhaldinu boða formlega til þriggja funda með félagsmönnum sínum til að fara yfir og svo kjósa um sameiningu klúbbanna.

Flagg GOB

Flagg GOB. Mynd: Heimasíða GOB

Fyrst verður boðað til Fyrirspurna- og upplýsingarfunds fyrir hvorn klúbb um miðjan nóvember þar sem félagsmönnum mun gefast kostur á spyrja stjórnarmenn síns klúbbs varðandi sameininguna. Félagsmenn munu fá send gögn varðandi sameininguna fyrir þennan fund sem þeir geta kynnt sér.

Kosningafundir um sameiningu verða boðaðir í framhaldinu og þeim lokið áður en aðalfundir klúbbana fara fram í byrjun desember.

Flagg GKJ. Mynd: Golf 1

Flagg GKJ. Mynd: Golf 1

Það er von beggja stjórna að málið fái brautargengi meðal félagsmanna enda telja stjórnir klúbbanna að í sameiningu klúbbanna verði til nýr og sterkur golfklúbbur sem verði í góðri stöðu til að þjónusta félagsmenn sína og gesti með fjölbreyttum golfvallarsvæðum og góðu félagsstarfi. Mikil áhersla verður lögð á að halda eftir öllu því besta sem báðir klúbbar hafa byggt upp en á sama tíma að horfa til framtíðar með metnaðarfulla uppbyggingu í huga sem fer í gang strax á nýju ári.

Fyrir hönd stjórnar Gkj,
Guðjón Karl Þórisson, formaður

Fyrir hönd stjórnar GOB,
Gunnar Ingi Björnsson, formaður.“