Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2014 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Cameron Percy (26/50)

Ástralski kylfingurinn Cameron Percy var sá 26. af 50 til þess að hljóta keppnisrétt á PGA Tour keppnistímabilið 2014-2015.

Percy fæddist í Chelsea, Victoria í Ástralíu 5. maí 1974 og varð því 40 ára nú í vor.

Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1998. Hann spilaði fyrst á Nationwide Tour (nú Web.com Tour) árið 2005, en átti náði litlum árngri og sneri aftur til Ástralíu þar sem hann vann m.a. tvívegis á Von Nida Tour árið 2006.

Percy var aftur á Nationwide Tour árið 2008 og varð árið eftir í 9. sæti á peninglistanum eftir að hafa verið 8 sinnum meðal efstu 10 og m.a. tvisvar í 2. sæti og hlaut því kortið sitt á PGA Tour 2010.

Á PGA Tour náði Percy  hins vegar aðeins að komast í gegnum niðurskurð 11 sinnum af 25 mótum, sem hann tók þátt í en 2. sætið sem hann náði á Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open bjargaði því að hann hélt skilyrtum status þar sem hann varð í 148. sæti á peningalistanum.

Nú keppnistímabilið 2014-2015 er Percy aftur að spila á PGA Tour!