Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2014 | 09:00

LPGA: Pace og Korda leiða e. 2. dag á Blue Bay LPGA

Það eru þær Lee-Anne Pace frá S-Afríku og bandarísk-tékkneski kylfingurinn Jessica Korda, sem leiða eftir 2. dag á Blue Bay LPGA á Hainan eyju í Kína.

Báðar eru þær búnar á leika á 11 undir pari, 133 höggum; Pace (67 66) og Korda (66 67).

Ein í 3. sæti er Chella Choi frá S-Kóreu á samtals 10 undir pari og 4. sætinu deila 3 kylfingar: Michelle Wie, Brittany Lang og Shanshan Feng, allar á 9 undir pari.

Í sjöunda sæti eru þýski Solheim Cup kylfingurinn Caroline Masson og bandaríski kylfingurinn Danielle Kang,  báðar á 8 undir pari.

Níunda sætinu deila síðan kínverski kylfingurinn Wanyao Lu og bandaríski kylfingurinn Austin Ernst, á 7 undir pari, hvor.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Blue Bay LPGA SMELLIÐ HÉR: