Afmæliskylfingur dagsins: Sun Young Yoo – 13. desember 2011
Það er Sun Young Yoo (유선영) sem er afmæliskylfingur dagsins en hún er fædd 13. desember 1986 í Seúl í Suður-Kóreu og því 25 ára í dag. Hún gerðist atvinnumaður í golfi 2004. Fyrst spilaði hún á Áskorendamótaröðinni, þar sem hún á skráðan 1 sigur á ferli sínum: á Betty Puskar Golf Classic árið 2005. Sigurinn og 10 aðrir topp-10 árangrar hennar í þeim 18 mótum sem hún spilaði í það ár urðu til þess að hún hlaut keppnisrétt á LPGA 2006.
Árið 2010 vann hún síðan fyrsta og eina sigur sinn til þessa á LPGA. Það var í Sybase holukeppninni, þar sem hún varð m.a. að spila gegn Jiyai Shin, sem þá var kvenkylfingur nr 1 á Rolex-heimslistanum. Yoo vann Shin 2&1.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Thomas G. Shaw, 13. desember 1938 (73 ára); Ray Stewart, 13. desember 1953 (58 ára); Sakura Yokomine (横峯さくら) f. 13. desember 1985 (26 ára).
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
