Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2014 | 18:10

Hvað er Michelle Wie að setja upp í sig?

Hafið þið haldið að meira en  $1.5 milljón í verðlaunafé og sigur á fyrsta risamótinu hafi breytt Michelle Wie, þá hugsið upp á nýtt.

Ykkur rekur e.t.v. minni til svipaðrar fréttar frá því á síðasta ári … en Wie endurtók leikinn í ár.

Hún sneri aftur til Suður-Kóreu í síðustu viku, þar sem hún tók þátt í LPGA-KEB Hanabank Championship.

Hún lauk keppni tveimur höggum á eftir sigurvegaranum „heimakonunni“ Baek þ.e. varð jöfn öðrum í 5. sæti.

Þetta er í fyrsta skipti sem nr. 6 á Rolex-heimslistanum (Wie) sneri til keppni eftir að hún dró sig úr Evían Championship í síðasta mánuði vegna meiðsla í úlnlið.

Og þegar Wie er í heimalandi foreldra sinna (en Wie er ættuð frá Suður-Kóreu, þó hún sé með bandarískan ríkisborgararétt)  þá gerir hún eins og aðrir heimamenn: fær sér prjóna og snæðir lifandi kolkrabba (eða eins og segir í fréttinni …..  calmly dropped the still-moving organism into her mouth🙂