Sara Margrét Hinriksdóttir, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 19. 2014 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Louis Oosthuizen og Sara Margrét Hinriksdóttir – 19. október 2014

Það eru Louis Oosthuizen og  Sara Margrét Hinriksdóttir sem eru  afmæliskylfingar dagsins. Sara Margrét er fædd 19. október 1996 og er því 18 ára í dag. Hún er afrekskylfingur í Golfklúbbnum Keili og í afreksmannahóp GSÍ völdum af Úlfari Jónssyni.

Sara Margrét var nú nýlega í sveit Keilis sem landaði 10. sætinu á European Ladies Club Trophy, sem fram fór í Þýskalandi 2.-4. október 2014.

Kvennasveit Keilis: f.v.: Þórdís, Anna Sólveig, Sara Margrét og Tinna. Mynd: GK

Kvennasveit Keilis: f.v.: Þórdís, Anna Sólveig, Sara Margrét og Tinna. Mynd: GK

Komast má á facebooksíðu Söru Margrétar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Sara Margrét Hinriksdóttir (18 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Einnig verður að geta þess sérstaklega að suður-afríski golfsnillingurinn Louis Oosthuizen á afmæli í dag, en hann er fæddur 19. október 1982 og á því 32 ára afmæli í dag.  Oosthuizen sigraði m.a., s.s. allir muna á Opna breska 2010.

Louis Oosthuizen

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Stefán Már Stefánsson, prófessor, 19. október 1938 (77 ára);  Dawn Coe-Jones, 19. október 1960 (54 ára);  Brian H Henninger, 19. október 1963 (51 árs); Kristvin Bjarnason, GB, 19. október 1971 (43 ára);  Jamie Donaldson, 19. október 1975 (39 ára) ….. og …..

Gaukur Kormáks (44 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is