Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Arnór Tumi og Stefán Teitur – 16. október 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Arnór Tumi Finnsson, GB og Stefán Teitur Þórðarson, GL.  Þeir eiga báðir sama afmælisdag upp á ár; báðir fæddir 16. október 1996 og því báðir 18 ára í dag. Arnór Tumi sigraði m.a 12. maí 2012, á hinu árlega Kríumóti Golfklúbbs Staðarsveitar á Garðavelli undir Jökli og er klúbbmeistari GB 2014.

Golf 1 hefir m.a. tekið viðtal við hinn afmæliskylfinginn, Stefán Teit, sem lesa má með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á Facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með afmælið hér að neðan:

Arnór Tumi Finnsson (18 ára – Innilega til hamingju með afmælið)
Stefán Teitur Þórðarson (18 ára – Innilega til hamingju með afmælið)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Herdís Guðmundsdóttir, (f. 16. október 1910- d. 29.1.1997) Fyrsti íslenski kvenkylfingurinn, sem hlaut meistaratign í golfi. Meistari Golfklúbbs Íslands, síðar GR, 1938, 1939, 1944, 1945 og 1948;  Margrét Óskarsdóttir, GKJ, 16. október 1951 (63 ára) ;  Val Skinner, 16. október 1960 (54 ára);  Kay Cockerill, 16. október 1964 (50 ára stórafmæli!!!) ….. og ……

Agnes Ingadóttir, GKJ(49 ára)
 

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is