Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2014 | 13:13

Ryder Cup: Bandaríkjamenn setja á laggirnar vinnuhóp til að taka á málum hjá sér – liðsmenn Evrópu gera grín að hópnum!

Bandaríkjamenn hafa nú sett á laggirnar vinnuhóp (ens. task force) til þess að bæta ástandið innan Ryder Cup liðsins og frammistöðuna í keppninni við lið Evrópu sem unnið hefir 8 sinnum í 10 síðustu viðureignum!  Talað er um task force um vinnuhópa innan hersins og grínið hér að neðan verður að skiljast í því ljósi!

Vinnuhópurinn hefir u.þ.b. 700 daga til stefnu, eða þar til liðin mætast að nýju á Hazeltine í Minnesota 2016!

Í vinnuhópnum eru m.a. Phil Mickelson og Tiger Woods, sjá með því að SMELLA HÉR: 

Nú þegar hafa nokkrir Ryder bikars leikmenn liðs Evrópu gert grín að nýja bandaríska vinnuhópnum en þeirra á meðal eru Lee Westwood og Ian Poulter.

Westy tvítaði m.a.: What a massive pat on the back & confidence booster it is for Europe that team USA needs to create a Ryder Cup task force!!! (Lausleg þýðing: Þvílíkt massa klapp á bakið og styrking á sjálfsörygginu sem það er fyrir Evrópu að bandaríska liðið þurfi að setja á fót Ryder Cup vinnuhóp!!!)

Doug Ferguson (golffréttaritari Associated Press (AP) ) tvítaði: Just saw the release on the big Ryder Cup Task Force. The secret password: Hindsight. (Lausleg þýðing: Var í þessu að sjá tilkynninguna um að Ryder Cup vinnuhóp hafi verið komið á laggirnar. Leyniorðið er: Eftirsjá)

Ian Poulter svaraði tvíti Ferguson: I thought it was 0,0,1,0,0,0,1,0,0,0  (Lausleg þýðing: Ég hélt að það væri  0,0,1,0,0,0,1,0,0,0 )  🙂