Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2014 | 07:00

Þið vitið líklega ekki hver er valdamesti maðurinn í golfinu… (n.b. það er ekki Trump!)

Golf Inc. magazine hefir tekið saman hverjir eru valdamestu menn í golfinu á heimsvísu – sjá með því að  SMELLA HÉR:

Þið vitið e.t.v hver er nr. 2 í heimi yfir valdamestu menn í golfinu: Donald Trump en þið þekkið e.t.v. ekki þann sem er nr. 1 þ.e. Eric Affeldt. Hann er forstjóri ClubCorp, sem fyrir ári síðan keypti 54 golfvelli í gegnum $ 265 milljóna fjárfestingu sína í Sequoia Golf. Skv. Golf Inc. er Affeldt sá eini sem er valdameiri í golfinu en sjálfur Trump!

Listinn er í raun svolítið tvískiptur þ.e. milli kylfinga sem allir kannast við s.s. nr. 4 á listanum Jack Nicklaus og nr. 5 Tim Finchem) til annarra nafna sem einungis eru þekktar innan golfgeirans (s.s. nr. 3 á listanum Dana Garmany, sem er forstjóri Troon Golf, Nr. 6 Peter Hill sem er forstjóri og nefndarmaður í Billy Casper Golf).

Þetta er allt skiljanlegt í ljósi þess að Golf Inc. er tímarit sem kemur út ársfjórðungslega og færir okkur „það nýjasta í þróun, sölu og stjórn á golfvöllum.“

Allir efstu 30 á listanum eru karlmenn, sem hafa áhrif á og móta golfleikinn í mismikið áberandi hætti.

Meðal annarra áhrifamanna í golfheiminum eru Mike Davis hjá USGA (bandaríska golfsambandinu) hann er í 7. sæti; Peter Dawson, hjá R&A (sem er í 13. sæti); forseti PGA of America, Tom Bishop (í 22. sæti) og framkvæmdastjóri Evróputúrsins, George O´Grady (23. sæti).

Það er aðeins einn maður á listanum af golffréttamönnum (það er forseti Golf Channel; Mike McCarley, sem er í 16. sæti); einn arkítekt (hönnuður Ólympíu golfvallarins) Gil Hanse, sem er í 20. sæti og aðeins 2 kylfingar sem enn keppa þ.e. Rory McIlory í 19. sæti og Tiger sem er í 29. sæti.