Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur B. Sveinsson – 9. október 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Guðlaugur B. Sveinsson, læknir.  Guðlaugur er fæddur  9. október 1959 og er því 55 ára í dag.

Guðlaugur er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og duglegur að taka þátt í opnum mótum.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  John Panton f. 9. október 1916 – d. 24. júlí 2009;  Sigríður Elín Þórðardóttir, GSS,  9. október 1960; Annika Sörenstam, 9. október 1970.

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is