Kvennasveit Keilis: f.v.: Þórdís, Anna Sólveig, Sara Margrét og Tinna. Mynd: GK Keiliskonur í 10. sæti á European Ladies Club Trophy
Kvennasveit Keilis skipuð þeim Tinnu Jóhannsdóttur, Þórdísi Geirs, Önnu Sólveigu Snorradóttur og Söru Margréti Hinriksdóttur hafnaði í 10. sæti á European Ladies Club Trophy.
Mótið fór fram í Achental GC, Mietenkamer Straße 65, í Grassau, Þýskalandi, 2. -4. október s.l. og lauk því á laugardeginum s.l.
Sigurvegarar voru kvenkylfingar í franska klúbbnum Racing Club de France, La Boulie.
Sjá má úrslitin með því að SMELLA HÉR:
Tinna Jóhannsdóttir skrifaði ferðasöguna, sem birtist á keilir.is:
„Við lögðum af stað í stormi síðastliðinn mánudag og var það viðeigandi byrjun á skemmtilegri viku.
Ferðalagið gekk snurðulaust þar til á hótelið var komið, sem á korti væri hægt að finna nokkuð nálægt “middle of no where” við landamæri Austurríksi. Þar tók eldri maður á móti okkur sem talaði litla sem enga ensku, sagði mér ég gæti fengið “tee times” á veitingastaðnum næsta dag. Einmitt. Þökkuðum bara fyrir okkur og hentum okkur í bólið.
Við vorum langfyrstar á svæðið og tókum æfingahring þar sem allskonar hælar tóku á móti okkur, gulir, rauðir og að sjálfsögðu eitthvað af hvítum. Völlurinn var spilaður af gulum teigum og alls ekki fyrir viðkvæma. Undirrituð fékk smá kitl í lófana sem breyttist fljótt í létti og í þó nokkra ánægju með captain bandið um handlegginn.
Við gerðum okkar besta, skorið hefði mátt vera betra en svona er þetta golf. You win some you lose some og 10. sætið staðreynd. Þetta fer allt í reynslubankann.
Ungu guggurnar fóru á kostum. Þær hafa þann hæfileika að mæta nánast aldrei á réttum tíma, liðstjóranum til mikillar ánægju. Menningarsjokkið var mikið þegar þær ákváðu að skella sér í spa-ið í þýsku sveitinni. Þar voru allir alls naktir! Ónefnd gugga mætti í blazer myndatökuna með gat í klofinu, ljósmyndarinn bað hana pent um að setja leggina sama þegar hún settist!
Eftir miklar vangaveltur og óánægju með golfið ákváðum við að reyna komast í H&M til að hressa uppá ferðina, enda ekki hægt að vera íslendingu í útlöndum og ekki fara í H&M. Næsta búðin var 30 mín keyrsla og við skelltum okkur eftir hringinn á föstudeginum. Eftirvæntingin var gríðarleg en breyttist hratt í örvæntingu og sorg þegar við loksins komum og búðin var LOKUÐ! Við felldum allar tár að innan.
Núna erum við fastar á Kastrup þar sem vélin okkar bilaði og þurfti að senda eftir varahlut frá Íslandi. Við lögðum af stað kl 3 í nótt á þýskum tíma og verðum komnar heim um 22 í kvöld. Frekar langt ferðalag en allt þess virði, það var H&M á Kastrup!
Við viljum þakka þeim sem tóku í styrktarmótinu okkar og sendum ykkur þýskar kveðjur frá sveitakusunum í Grassau!
Tinna Jóh.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

