Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2014 | 17:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Byron Smith (9/50)

Byron Smith varð nr. 42 af þeim 50 sem fengu kortin sín eftir Web.com finals fyrir viku síðan.

Smith er fæddur 31. mars 1981 í Palm Springs, Kaliforníu og því 33 ára.  Hann spilaði með golfliði Pepperdine University í bandaríska háskólagolfinu.

Hann spilaði ekki með háskólaliðinu síðustu 2 árin af því að hann ákvað að gerast atvinnumaður í golfi 2001 og hætti í háskóla.

Smith spilaði fyrst á kanadíska PGA túrnum árið 2005 en vakti í raun enga athygli fyrr en 2007, þegar hann vann 2 sinnum og var með 5 topp-10 árangra og yfir  $89,000 í verðlaunafé.  Byron Smith varð sem sagt í 1. sæti á peningalistanum og hlaut hann fyrir það keppnisrétt í 5 ár á kanadaíska PGA.

Árið 2008 var Smith slæmt; hann vann ekki íneinu móti en það næsta 2009 var betra en þá sigraði hann á 3. móti sínu á kanadíska túrnum the Times Colonist Open.

Byron Smith hefir líka spilað á the Hooters Tour þar sem hann varð meðal efstu 10 á peningalistanum 2004. Hann tapaði í bráðabana á Spanos Tour á árinu 2005.

Smith spilaði á Web.com Tour árið 2014 og vann þar sinn fyrsta sigur á mótaröðinni þ.e. the Rex Hospital Open. Keppnistímabilið 2014-2015 á PGA Tour, sem hefst í næstu viku er Byron Smith því með!