Ragnheiður Jónsdóttir | september. 18. 2014 | 21:00

Þórður Rafn á 5 undir pari á 3. degi úrtökumótsins í Frilford Heath!!!

Þórður Rafn Gissurarson, GR átti hreint frábæran hring á 3. degi 1. stigs úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina, sem fram fer á Frilford Heath Blue vellinum í Englandi.

Þórður Rafn lék á 5 undir pari, 67 höggum fékk m.a. 2 erni og 3 fugla á hringnum, en því miður einnig 2 skolla. Engu að síður stórglæsilegt hjá Þórði Rafni!

Samtals er Þórður Rafn búinn að spila á 211 höggum (72 72 67) og er aðeins 1 höggi frá hópi 16 efstu. þ.e. þeirra sem eru í 16.-23. sæti.  Þórður Rafn er sem stendur í 24.-31. sæti með 7 öðrum og þessi árangur nægir ekki og verður Þórður Rafn því að halda uppteknum hætti á morgun og helst að gera betur ætli hann sér áfram!  Þetta er aðeins spurning um herslumun!!!

Aðeins 21 efstu og þeir sem jafnir eru í því sæti komast áfram á 2. stig úrtökumótsins…. og auðvitað vonandi að Þórður Rafn verði þar á meðal!!!

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag úrtökumótsins á Frilford Heath  SMELLIÐ HÉR: