Ragnar Már Garðarsson, GKG, á 1. teig á glæsilokahringnum á Egils Gull mótinu þar sem Ragnar Már setti nýtt vallarmet af hvítum teigum – 62 högg!!! Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2014 | 10:14

Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már og McNeese luku leik í 5. sæti

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese háskólans luku keppni í gær á Ram Masters Invitational by Pedersen Toyota, í Colorado.

Mótið stóð dagana 15.-16. september 2014 og  þátttakendur voru 84 frá 15 háskólum.

Ragnar lauk leik á 14 yfir pari, 224 höggum (72 76 76) og lauk leik  T-45 í einstaklingskeppninni og var á 4. besta skori í liði sínu.

Sjá má lokastöðuna í einstaklingskeppninni á Ram Masters í Colorado með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má lokastöðuna í einstaklingskeppninni á Ram Masters í Colorado með því að SMELLA HÉR: