Kristján Þór Einarsson, GKJ, 2014 Icelandic Champion in Match Play. Photo: Golf 1 GKJ: Old Spice sigraði í Styrktarmóti Kristjáns Þórs – Úrslit – Þakkarorð Kristjáns Þórs
Styrktarmót Kristjáns Þór Einarssonar fór fram á Hlíðavelli í gær, laugardaginn 13. september 2014 í ágætis golfveðri. Fullt var í mótið – þátttakendur voru 196, sem sýnir glæsilegan samtakarmátt kylfinga hér á landi þegar það kemur að því að styðja við bakið á einn af okkar bestu til þess að frami hans og brautargengi og þar með íslensks golfs megi verða sem mestur á erlendum úrtökumótum.
Fjölmargir lögðu hönd á plóginn til þess að styrktarmót Kristjáns Þórs gæti orðið sem best og má með sanni segja að það hafi tekist. Það er enn vert að minna á, fyrir þá sem ekki sáu sér fært að taka þátt í mótinu, þá er hægt að styrkja Kristján Þór með því að leggja inn á reikning:
0528-14-120568
Kt 160347-7169
Úrslit í mótinu voru eftirfarandi:
1. sæti Sigurpáll Geir Sveinssón GKJ/Magnús Lárusson GJÓ (Old Spice) 60 högg
Cobra burðarpoki og Puma fatnaður frá Hole in One x2
Ostborgaramáltíð í boði Hvíta Riddarans x2
2. sæti Gunnar Ingi Björnsson GOB/Jón Karlsson GHG 61 högg
IQ þriggja hjóla kerra frá Golfskálanum x2
Ostborgaramáltíð í boði Hvíta Riddarans x2
3. Sæti Sigurður Már Þórhallsson GR/Sigurður Bjarki Blumenstein GR 61 högg
Ping i20 brautartré frá ISAM x2
Ostborgaramáltið í boði Hvíta Riddarans x2
4. sæti Örn Bergmann Úlfarsson GR/Steinar Snær Sævarsson GBE 61 högg
Cleveland fleygjárn frá Erninum x2
5. Sæti Haukur Hafsteinsson GKJ/Jón Hilmar Kristjánsson GKJ 62 högg
5kg af þorskhnakka frá Fiskmarkaði Íslands x2
6. sæti Heiða Guðnadóttir GKJ/Guðni Vignir Sveinsson GS 64 högg
Hringur fyrir 4 á Hlíðavelli + Gjafabréf fyrir tvo á veitingastaðnum Fish x2
7. sæti Kjartan Tómas Guðjónsson GR/Guðmundur Jónsson GKJ 64 högg
Hringur á golfvelli GR fyrir 4 + Gjafabréf fyrir tvo á veitingastaðnum Fish x2
14. sæti Hjörleifur Harðarson GKG/Jón Ásgeir Ríkarðsson GK 65 högg
Ostakarfa frá MS x2
30. sæti Óttar Helgi Einarsson GKG/Ingi Heimisson GKG 68 högg
Ostakarfa frá MS x2
58. sæti Bjarnþór Erlendsson GKJ/Hákon Gunnarsson GKJ 70 högg
Ostakarfa frá MS x2
91. sæti Helga Aspelund GKJ/Guðmundur Gylfi Guðmundsson GKJ 88 högg
2×30 mínútna golfkennsla hjá Sigurpáli Geir Sveinssyni golfkennara GKJ
Nándarverðlaun
1. hola Steinar Snær GBE 64cm
Nóa siríus konfekt + 5000kr gjafabréf á Hvíta Riddarann
9. hola Gunnar Marel GOS 2.19m
Nóa Siríus konfekt + Bjórkort á Hvíta Riddaranum
12. hola Hilmir Guðlaugsson GOS 1.35
Nóa konfekt + 5000kr gjafabréf á Hvíta Riddaranum
15. hola Magnús Lárusson GJÓ 1.11m
Nóa konfekt + Bjórkort á Hvíta Riddaranum
18. hola Kristján Jónsson GBO 0cm
2xEgils Gull + Nóa konfekt
5. hola Magnús Lárusson GJÓ
Gjafakarfa frá Natan Olsen, Nóa Konfekt, Golfboltar frá golfbúð GKJ
8. hola Camilla Tvingmark GKJ
Gjafakarfa frá Natan Olsen, Nóa Konfekt, Golfboltar frá golfbúð GKJ
Kristján Þór vill koma á framfæri þökkum til allra sem þátt tóku og hafa stutt hann í eftirfarandi orðum:
„Kæru þátttakendur og aðrir.
Ég vil þakka ykkur kærlega fyrir komuna í dag (í gær) og um leið þakka fyrir þann styrk sem þið veittuð mér í dag (Í gær). Þessi dagur er búinn að vera hreint frábær og veðrið var yndislegt í allan dag. Mótið heppnaðist mjög vel miðað við hvað þið hafið sagt mér og ég er mjög ánægður með það. Enn og aftur takk kærlega fyrir daginn og takk kærlega fyrir mig.
Ég vil einnig þakka þeim fyrirtækjum sem að sýndu mér stuðning og gáfu glæsileg verðlaun í mótið, svo það gæti orðið sem veglegast og ber þar helst að nefna Hole in One, Golfskálann, ÍslenskAmeríska, Örninn golfverslun og Fiskmarkað Íslands sem að styrktu mótið í eftsu 5 sætin. Einnig vil ég þakka öllum þeim aðilum og fyrirtækjum sem komu að þessu móti á einn eða annan hátt og gáfu verðlaun og hjálpuðu mér við skipulag og undirbúning mótsins. Sigurpáll Geir Sveinsson, Haukur Hafsteinsson, Hilmar Harðarson takk æðislega fyrir hjálpina við undirbúninginn. Þórður Úlfar Ragnarsson og Snorri Kjartansson voru mér til halds og traust í afgreiðslu mótsins og þakka ég ykkur kærlega fyrir alla þá hjálp sem þið veittuð mér í dag. Einnig vil ég þakka Golfklúbbnum Kili kærlega fyrir að lána mér völlinn á þessum fallega degi. Svo ekki sé minnst á einn af mikilvægari þáttum mótsins að þá vil ég þakka vallarstarfsmönnum klúbbsins, sem að unnu hörðum höndum alla vikuna við að gera völlinn sem allra bestan fyrir mótið.“
Helstu styrktaraðilar styrktarmóts Kristjáns voru:
Hole in One
Golfskálinn
ÍslenskAmeríska
Örninn golfverslun
Fiskmarkaður Íslands ehf
Veitingastaðurinn Fish
Nói Siríus
Hvíti Riddarinn Restaurant/Bar
Nathan Olsen
Mjólkursamsalan
Golfbúð Kjalar
Sigurpáll Geir Sveinsson
Golfklúbburinn Kjölur
Golfklúbbur Reykjavíkur
Ölgerðin
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
