Ragnheiður Jónsdóttir | september. 10. 2014 | 14:30

GK: Mánaðarmótið – Styrktarmót fyrir sveitir Keilis

Golfklúbburinn Keilir stendur fyrir nýjung í keppnishaldi á Íslandi. Um er að ræða styrktarmót fyrir sveitir Keilis sem keppa á Evrópumóti klúbbliða í Búlgaríu og Þýskalandi. Mótið stendur yfir í einn mánuð, frá 10. september til 10. október.

– Þú getur tekið þátt hvenær sem þér hentar.
– Besta skorið gildir hverju sinni í mótinu.
– Þú bókar rástíma sjálf/ur í gegnum bókunarkerfi Keilis á golf.is.
Innanklúbbsreglur um bókun rástíma gilda fyrir alla keppendur.
– Þú tilkynnir þátttöku í golfverslun og greiðir þátttökugjald fyrir hringinn
og skilar undirskrifuðu korti eftir hring á sama stað.
– Þú mátt spila eins oft og þú vilt meðan á mótinu stendur, frá 10. september til 10. október.

Þátttökugjald einungis 1500 krónur fyrir Keilisfélaga og 3500 krónur fyrir utanfélagsmenn.
Gjald fyrir utanfélagsmenn gildir einungis þegar þeir keppa á þessu móti, annars er vallargjaldið 6.500 kr. á Hvaleyrarvelli.

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 5 efstu sætin í höggleik og 20 efstu sætin í punktakeppni.
Leikin er punktakeppni með hámarksforgjöf 18.

Þátttaka í mótinu er kjörið tækifæri til að spila golf á Hvaleyrarvelli í móti þegar þér hentar gegn vægu gjaldi.

Hvaleyrarvöllur skartar sínu fegursta þessa dagana, og er í toppstandi.