Dagur Ebenezersson, GM. Photo: DE
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 10. 2014 | 06:45

Bandaríska háskólagolfið: Dagur Ebenezersson í 35. sæti á 1. móti sínu

Dagur Ebenezersson, GKJ leikur með háskólaliði Catawba í Norður-Karólínu og tók þátt í 1. háskólamóti sínu vestra nú í vikunni.

Hann lék í sama móti og Íris Katla Guðmundsdóttir, GR, the Anderson Invitational á golfvelli Cobbs Glenn í Anderson, Suður-Karólínu.

Mótið stóð dagana 8.-9. september og lauk í gær.

Dagur lék á samtals 164 höggum (80 84) og lauk keppni í 5. og síðasta sæti í liði sínu eða í 35. sæti.

Catawba liðið varð hins vegar í 3. sæti af 7 liðum, sem þátt tóku.

Næsta mót Dags og Catawba-liðsins er í nsætu viku þ.e. the Full Moon BBQ Invitational í  Timberline Golf Club í Calera, Alabama.

ANDERSON INVITATIONAL – Úrslit Liðakeppni

Sætistala   Lið   Skor
1. sæti Erskine 305-284=589 +13
2. sæti Queens 303-297=600 +24
3. sæti CATAWBA 307-299=606 +30
4. sæti Spartanburg Methodist 317-294=611 +35
5. sæti Milligan 301-311=612 +36
6. sæti Erskine ‘B’  305-313=618 +42
7. sæti Anderson 319-309=628 +52

Einstaklingskeppni (bara liðsmenn Catawba liðsins):
4. sæti Matt Hardman, 75-72=147
11.sæti  Zach Griffis, 77-73=150
18.sæti  Brian Donaldson, 76-77=153
22. sæti Jordan Taylor, 79-77=156
35. sæti  Dagur Ebenezersson, 80-84=164