Nýja eyjuflötin á par-3 7. braut hins nýja Hólsvallar á Siglufirði. Mynd: Af Twitter síðu Edwins Roalds Ísskóflu-áskorun Edwin Roald á Siglufirði – Myndskeið
Edwin Roald golfvallarhönnuður er að hanna nýja glæsilega golfvöllinn á Siglufirði, Hólsvöll.
Nú þegar öll heimsbyggðin tekur þátt í því sem upp á ensku hefir verið nefnt Ice Bucket Challenge – sem fellst í því að láta hvolfa úr fötu n.b. fötu af ísvatni yfir sig … og skora síðan á 3 aðra að gera slíkt hið sama eða að öðrum kosti styrkja ALS-samtökin, þá ætlar Edwin Roald sko alls ekki að vera eftirbátur neins. ALS er annars ein tegund MND og má t.a.m. fræðast nánar um þá sjúkdóma með því að SMELLA HÉR:
Margir kannast við Guðjón Sigurðsson, sem er einn þeirra sem haldinn er MND sjúkdómnum á Íslandi og árlegu styrktarmóti hans á Vatnsleysunni.

Guðjón Sigurðsson. Mynd: Golf 1
Flestir sem taka þátt hvolfa ísvatni yfir höfuð sér OG styrkja ALS-samtökin.
Svona ísfötuáskorun, eins og hún hefir þýdd á íslensku er ekki gild nema tilnefndir séu 3 aðrir sem gera eiga slíkt hið sama.
Edwin Roald tók ísfötuáskorunina í annað veldi þegar hann lét hvolfa kranaskóflufylli af ísvatni yfir sig á Siglufirði s.s. sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.
Henn tilnefndi hins vegar enga aðra til þess að taka áskoruninni og því óvíst hvort hún er gild og eiginlega verður hann að endurtaka ísskóflu áskorunina og skora á einhvern að gera slíkt hið sama 🙂 Svo er spurning ef á að starta svona svipuðu hér á landi hvort ekki ætti að styrkja MND/ALS sjúka á Íslandi, eins og gert er erlendis?
Hér má sjá myndskeiðið af ísskóflu áskorun Edwin Roald SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
