Watson segir að Bradley gæti verið „Poulter“ liðs Bandaríkjanna
Fyrirliði liðs Bandaríkjanna í Ryder bikarnum, Tom Watson vonast til að Keegan Bradley verði „Poulter Bandaríkjanna“ í slagnum milli heimsálfanna seinna í þessum mánuði.
Bradley var fyrsti kylfingurin,n sem Watson nefndi þegar hann gerði val sitt að liðsmönnum í liðið kunnugt og telur að hann komi til með að gegna svipuðu hlutverki og einn kylfingurinn sem Paul McGinley valdi: Ian Poulter.
„Keegan Bradley gæti verið Ian Poulter-inn okkar,“ sagði Watson. „Hann er yndislegur náungi. Hann hefir þessa sigurþrá sem ég held að muni hjálpa liðinu stórkostlega“
„Hann spilar vel í slæmum veðrum. Hann tekur regngallan með sér hvert sem hann fer. Hann keppti á skíðum í menntaskóla og spilar svolítið eins og Henrik Stenson,“ bætti Watson við.
Bradley vann líka alla leiki sína í Medinah með Phil Mickelson; eina tap hans kom í tvímenningnum gegn Rory McIlroy.
Og Bradley var ánægður að hafa verið valinn í Ryder bikars liðið.
„Við spilum allt árið fyrir peninginga, frægð, flotta sigurbikara og til þess að skrifa golfsöguna,“ sagð Bradley m.a. í viðtali við Sky Sports News. „En það er þvílíkur kraftur að spila í Rydernum. Það er óútskýranlegt. Að vera hluti af liði, að vera í liðsherberginu, að vera með fyirliða eins og Tom Watson…. það er ekki hægt að koma orðum að því.“
„Mikill meirihluti liðsins var í Chicago á síðasta ári. Að hugsa að ef ég myndi ekki hafa tækifæri til þess að hafa áhrif á hvað gerist í Skotlandi myndi hafa verið erfitt. Ryder Cup hefir þetta aðdráttarafl – hann fær mann til að gera klikkaða hluti. Þetta er ótrúlegt mót.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
