Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2014 | 00:30

Birgir Leifur á 67 höggum á 1. degi Willis Masters

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG er í 9. sæti eftir 1. keppnisdag Willis Masters sem er hluti af Nordic League mótaraðarinnar, sem hann deilir með 12 öðrum.

Birgir Leifur lék 1. hringinn á 5 undir pari 67 höggum; fékk 7 fugla og 2 skolla.

Axel Bóasson, GK,  lék á 1 undir pari 71 höggi og er í 53. sæti eftir 1. dag og Ólafur Björn Loftsson, NK, lék á 6 yfir pari, 78 höggum og er í 142. sæti.

Í efsta sæti eftir 1. keppnisdag á Willis Masters er  Svíinn Oscar Zetterwall á 9 undir pari, 63 höggum.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Willis Masters SMELLIÐ HÉR:  (Veljið Scores)