Henning Darri Þórðarson, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2014 | 16:30

Henning Darri lék best Íslendinganna á 1. degi Opna ítalska U-16 ára áhugamannamótinu

Arnór Snær Guðmundsson, GHD, Fannar Ingi Steingrímsson, GHG og Henning Darri Þórðarson GK, hófu í dag leik á Opna ítalska U-16 ára áhugamannamótinu.

Liðsstjóri í ferðinni er Heiðar Davíð Bragason.

Leikið er á Biella „Le Betulle“ golfvellinum í ítölsku Ölpunum.

Henning Darri lék best á 1. degi – spilaði á 4 yfir pari, 77 höggum – fékk 2 fugla og 6 skolla – Glæsilegt skor á „Le Betulle“ fyrir þá sem eru að spila völlinn í fyrsta sinn!!!  Henning Darri er í 20.-26. sæti eftir 1. dag af 132 þátttakendum.

Arnór Snær er höggi á eftir og Fannar Ingi var ekki alveg að finna sig fyrsta daginn,  lék á 10 yfir pari, 83 höggum.

Í efsta sæti eru norskur frændi okkar Kristoffer Reitan og „heimamaðurinn“ Leonardo Novella,  sem léku „Le Betulle“ á 2 undir pari, 71 höggi!!! Glæsilegt.