Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2014 | 08:20

Eimskipsmótaröðin 2014 (7): Arnarmennirnir

Nú er nýlokið Goðamótinu, 7. og síðasta móti Eimskipsmótaraðarinnar, en leikið var á Jaðarsvelli á Akureyri.

73 kylfingar luku keppni þar af 14 kvenkylfingar.

Golf 1 er hér með nýtt hugtak „Arnarmenn“ en það eru þeir á Eimskipsmótaröðinni hafa fengið erni í mótum mótaraðarinnar og leitt að hér er í fyrsta sinn farið að taka saman þá statistík í síðasta mótinu, en á þessu verður e.t.v. framhald, 2015.

Í 7. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Goðamótinu, á Akureyri fengu 10 kylfingar af 73, erni, en enginn kvenkylfingur var þar á meðal, en svo virðist sem konurnar fái færri erni hlutfallslega en karlar í mótum.  Eftirfarandi 10 fengu 1 eða fleiri erni á Goðamótinu:

1. Benedikt Sveinsson, GK,  hann fékk 2 glæsierni; báða á par-5 3. holu Jaðarsvallar á 1. og 2. hring Goðamótsins en Benedikt virðist svo sannarlega kunna vel við sig á 3. braut á Jaðrinum!!!

2. Kristján Þór Einarsson, GKJ, stigameistari og Íslandsmeistari í holukeppni fékk líka örn á par-5 3. braut á 2. hring Goðamótsins.

3. Bjarki Pétursson, GB, fékk glæsiörn á par-5 15. braut Jaðarsins á 1. hring Goðamótsins.

4. Ævarr Freyr Birgisson, klúbbmeistari GA 2014, fékk glæsiörn á par-4 1. braut Jaðarsins á 1. spiluðu holu sinni í mótinu – Draumabyrjun!

5. Ingi Rúnar Gíslason, GS, fékk örn á par-5 15. brautina á lokahring Goðamótsins, sem er vel af sér vikið í hvassviðrinu sem þá var orðið!

6. Akureyringurinn Samúel Gunnarsson, GA fékk örn á par-5 3. brautina á lokahring Goðamótsins.

7. Jóhann Sigurðsson, GR, var með ás á par-3 11. holunni á 2. hring Goðamótsins og það er jafnframt örn!

8. Páll Theódórsson, GKJ, var með örn á par-5 3. brautinni á 1. hring Goðamótsins.

9. „Heimamaðurinn“ Jason James Wright, GA, var með örn á par-5 15. brautinni og sá örn kom á lokahringnum.

10. „Heimamanninum“ Birni Auðunni Ólafssyni, GA, tókst að næla sér í örn á par-5 2. brautinni!!!

Þær brautir þar sem flestir ernirnir duttu:

3. braut (par-5)  5 ernir

15. braut (par-5) 3 ernir

1. braut (par-4) 1 örn

2. braut (par-5) 1 örn

11. braut (par-3) 1 örn

Ernir komu á allar gerðir brauta;  par-3, par-4 og par-5 og flestir (9 ernir) s.s. algengast er á par-5 brautirnar og þá flestir (5 ernir) á par-5, 3. brautina á Jaðrinum.

Flestir ernir af örnunum 11 eftir klúbbum kom hjá félögum í GA eða 4 talsins og 2 hjá GK og GKJ, síðan voru félagar úr GB, GR GS með 1 örn hver.