European Senior Tour: Monty sigraði á Travis Perkins Masters!
Colin Montgomerie (Monty) sigraði með yfirburðum á Travis Perkins Masters mótinu í Woburn Golf Club, en mótið var hluti af öldungamótaröð Evrópu (ens. European Senior Tour).
Monty átti 10 högg á næstu keppendur þá André Bossert, Gordon Manson og Tim Thelen, sem deildu 2. sæti.
Monty lék á samtals 12 undir pari, 204 höggum (68 69 67) og vann sér inn € 56,376 í verðlaunafé. Hér var um titilvörn Monty að ræða en hann sigraði einnig á mótinu í fyrra.
Eftir að sigurinn var í höfn var m.a. haft eftir Monty á vefsíðu Evrópumótaraðarinnar: „Ég er ánægður að hafa komið aftur og varið þennan frábæra titil. Þetta lítur eflaust út fyrir að hafa verið þægilegt og í lokin var það það líka, en Mike (Cunning – sem varð einn í 5. sæti) tókst að komat innan 2 högga frá mér og það gæti svo auðveldlega hafa verið 1 högg á einum tímapunkti. Ég byrjaði ekkert svo vel, en náði fugli á 6. holu (lokahringsins) og þaðan í frá var það allt upp á við fyrir mig.“
Til þess að sjá lokastöðuna á Travis Perkins Masters mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
