Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2014 | 14:15

LET Access: Valdís Þóra komst ekki gegnum niðurskurð í Finnlandi

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hóf leik í gær í HLR Golf Academy Open, en mótið fer fram í  Hillside GC í Vihti, Finnlandi.

Mótið stendur dagana 29.-31. ágúst 2014 og þátttakendur eru um 120, margir hverjir afar sterkir.

Þar mætti t.a.m. geta LET kylfingsins finnska þ.e. heimakonunnar Elinar Nummenpää (Sjá kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR :) Caroline Romninger eins fremsta kvenkylfings Sviss, Emmu Westin frá Svíþjóð, sem þegar hefir tekið forystu í mótinu á glæsilengum 6 undir pari, spænsku LET kylfinganna Maríu Beautell og Carmen Alonso, brasilíönsku fegurðardrottning-arinnar með skrítna eftirnafnið Viktoríu Lovelady, (sjá kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR: ) auk Isabell Gabsa frá Þýskalandi (sjá kynningu Golf 1 á Gabsa með því að SMELLA HÉR :)

Valdís Þóra lék 1. hring á 7 yfir pari, 78 höggum og 2. hringinn á 6 yfir pari, 77 höggum og er því satmals á 13 yfir pari, 155 höggum (78 77) og allar líkur á að hún komist ekki í gegnum niðurskurð en hann er sem stendur miðaður við samtals 8 yfir pari.

Nokkrir keppendur eiga eftir að ljúka leik, en því miður nánast útilokað að Valdís Þóra hafi ná niðurskurði.

Til þess að sjá stöðuna á HLR Golf Academy Open SMELLIÐ HÉR: