Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2014 | 09:30

Love afi í fyrsta sinn

Jafnvel þó Davis Love III sé fremur tregur til að taka þátt í neinu sem tengist öldunga- þá náði hann einum áfanga öldunga, sem kom alveg sjálfkrafa án hann fengi nokkru um ráðið.

Davis Love III, sem varð 50 ára í apríl s.l. varð nú um daginn afi í fyrsta sinn.

Dóttir Love, Alexia eignaðist sitt fyrsta barn tæplega 3 kg stúlku, sem þegar hefir hlotið nafnið Eloise Charles.

Þar með hlaut hinn 20-faldi PGA Tour sigurvegari (Love) nýjan titil – AFI.

Skv. umboðsmanni Love hjá  Lagardere Unlimited, Mac Barnhardt, “þá líður öllum vel.”

Love spilar ekki í FedEx Cup umspilinu en mun taka þátt í  McGladrey Classic í október.