Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2014 | 06:00

Evróputúrinn: Molinari og Wiesberger deila forystu e. 1. dag Opna ítalska

Það eru þeir Bernd Wiesberger og Francesco Molinari, sem deila 1. sætinu á Opna ítalska eftir 1. keppnisdag.

Báðir eru búnir að spila á 6 undir pari, 66 höggum.

Paul McGinley, fyrirliði Ryder Cup liðs Evrópu sagði að Francesco Molinari væri „sér ofarlega í huga“ í vali hans á 3 leikmönnum í Ryder bikarslið Evrópu, sem ekki fá þar sjálfkrafa sæti.

Í 3. sæti 1 höggi á eftir eru 5 kylfingar: Rickie Ramsay, Hennie Otto, Richard Bland, John Hahn og Gareth Maybin.

Stephen Gallacher sem er sá eini í mótinu sem spilar um sjálfkrafa sæti í Ryder bikars liði Evrópu en til þess að tryggja sér það sæti þarf Gallacher að vera annaðhvort í 1. eða 2. sæti á Opna ítalska.

Gallacher byrjar ekki nógu vel, lék á 2 undir pari 70 höggum og þarf að gefa í, í dag ætli hann sér að ná tilætluðu markmiði.   Gallacher, sem býr aðeins 35 km frá Gleneagles og þekkir vellina þar eins og höndina sagði eftir hringinn: „Ég varð fyrir svolitlum vonbrigðum vegna þess að ég missti nokkur högg á miðjum hringnum, en það er allt í lagi fyrsta daginn og ég er aðeins góðu skori frá efstu sætunum á skortöflunni.

Til þess að sjá stöðuna á Opna ítalska SMELLIÐ HÉR: