Íslandsmeistarar GK í Sveitakeppni GSÍ 2014 í stúlknaflokki
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2014 | 14:00

Sveitakeppni GSÍ 2014 unglingar: Sveit GK Íslandsmeistari í stúlknaflokki!!!

Það er sveit Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði sem er Íslandsmeistari í stúlknaflokki 18 ára og yngri í Sveitakeppni GSÍ 2014.

Sveit GK - Íslandsmeistari í Sveitakeppni GSÍ í stúlknaflokki. Mynd: Í einkaeigu

Íslandsmeistarasveit GK í stúlknaflokki 2014 skipa eftirfarandi kylfingar:Sigurlaug Rún Jónsdóttir

Hafdís Alda Jóhannsdóttir

Sara Margrét Hinriksdóttir

Thelma Sveinsdóttir

Harpa Líf Bjarkadóttir

Liðsstjóri: Karl Ómar Karlsson

Sveitakeppi í flokki stúlkna 18 ára og yngri fór þetta árið fram í Öndverðarnesi.   Alls kepptu 5 stúlknasveitir: Sveit GK, Sveit Odds/Selfoss; Sveit GR; Sveit GS og Sveit GKJ.

Leiknar voru 5 umferðir:

1. umferð.

Í fyrstu umferð mættust sveit GR og sveit Odds/Selfoss. Sveit GR vann 2-1.  Eins mættust sveit GS og sveit GKJ. Sveit GS vann 2-1.

2. umferð. 

Í 2. umferð mættust sveit GK og sveit GS. Sveit GK vann yfirburðasigur 3-0. Síðan mættust sveit Odds/Selfoss og sveit GKJ.  Sveit GKJ vann 2-1.

3. umferð

Í 3. umferð mættust sveit GK og sveit GKJ. Sveit GK vann að nýju yfirburðasigur 3-0. Síðan mættust sveit GR og sveit GS.  Sveit GR vann yfirburðasigur 3-0. 

4. umferð

Í 4. umferð lék sveit GK við sveit Odds/Selfoss. Sveit GK vann enn á ný yfirburðasigur 3-0  Síðan mættust sveit GR og sveit GKJ. Sveit GR vann að nýju yfirburða- sigur 3-0. 

5. umferð

Í 5. og síðustu umferð mættust sveit Odds/Selfoos og sveit GS.  Sveit GS sigraði 2-1.  Í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn mættust síðan þau lið sem búin voru að vinna alla leiki sína sveit GK og sveit GR.  Þar vann sveit GK 2-1.  Leikar fóru svo að sveit GK með þær Thelmu Sveinsdóttur og Hafdísi Jóhannsdóttur í liði sigruðu í fjórmenningi þær Karen Kristjánsdóttur, GR og Evu Björnsdóttur, GR, nokkuð sannfærandi 5&4.  Sara Margrét Hinriksdóttir, GK vann tvímenningsleik sinn gegn Sögu Traustadóttur, GR 3&2. Heiðri GR hélt Ragnhildur Kristinsdóttir, GR á lofti en hún vann sinn tvímenningsleik gegn Sigurlaugu Rún Jónsdóttur 3&2.   Sveit GK sigraði því úrslitaleikinn 2-1.

Lokastaðan í Sveitakeppni GSÍ í stúlknaflokki 2014 er eftirfarandi:

1. sæti Sveit GK (Íslandsmeistarar)

2. sæti Sveit GR

3. sæti Sveit GS

4. sæti Sveit GKJ

5. sæti Sveit Odds/Selfoss.