Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2014 | 12:00

Sveitakeppni GSÍ 2014 unglingar: Sveit GA/GHD Íslandsmeistari í telpnaflokki 15 ára og yngri!!!

Það er sveit GA/GHD sem er Íslandsmeistari í Sveitakeppni GSÍ 2014 í telpnaflokki.  Telpnasveitirnar og stúlknasveitirnar í ár kepptu í Öndverðarnesinu.

Íslandsmeistarasveit GA/GHD er skipuð eftirfarandi leikmönnum:

Ólöf María Einarsdóttir

Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir

Amanda Guðrún Bjarnadóttir

Magnea Helga Guðmundsdóttir

Andrea Ýr Ásmundsdóttir

Liðsstjóri: Lilja Guðnadóttir

Alls voru 5 sveitir sem kepptu í telpnaflokki í Sveitakeppni GSÍ 2014: GA/GHD; GK; GR; GKG I og GKG II.

1. umferð

Í 1. umferð keppti sveit GA/GHD við sveit GR.  Magnea Helga Guðmundsdóttir GA/GHD og Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir GA/GHD unnu fjórmenningsleik sinn  gegn þeim Nínu Valtýsdóttur, GR og Sóley Karlsdóttur, GR 4&3.  Ólöf María Einarsdóttir GA/GHD sigraði sannfærandi í viðureign sinni gegn Sunnu Karlsdóttur 6&4. Sú sem hélt uppi heiðri GR var Gerður Ragnarsdóttir en hún vann sína viðureign gegn Andreu Ýr Ásmundsdóttur 2&1.  Viðureign GA/GHD og GR fór því 2-1.

Hinn leikurinn í 1. umferð var leikur GKG I gegn GKG II.  Þar vann GKG 1.  Þær Hulda Clara Gestsdóttir, GKG I og Herdís Lilja Þórðardóttir, GKG I unnu fjórmenningsleik sinn gegn þeim Helgu Maríu Guðmundsdóttur GKG II og  Írisi Mjöll Jóhannesdóttur, GKG II. Eva María Gestsdóttir, GKG I vann viðureign sína í tvímenningi við Áslaugu Sól Sigurðardóttur, GKG II 9&8. Heiðri GKGII hélt Iðunn Jóhannsdóttir á lofti en hún vann viðureign sína við Ölmu Rún Ragnarsdóttur, GKG I, 3&1.   Viðureign GKG I og GKG II fór því 2-1

Stelpurnar sem urðu í 3. sæti í Sveitakeppni í telpnaflokki 15 ára og yngri 2014. Mynd: Úlfar Jónsson

2. umferð

Í 2. umferð mættust sveit GK og sveit GKG I.  Þar sigraði sveit GKG I  2-1.  Eins mættust sveit GA/GHD og sveit GKG II og þar vann sveit GA/GHD allar viðureignir sínar 3-0.

3. umferð

Í 3. umferð mættust sveit GK og sveit GKG II og þar sigraði GK 2-1. Eins mættust sveit GR og GKG I og sveit GR vann 2-1.

4. umferð

Í 4. umferð mættust sveit GA/GHD og sveit GK og sigraði sveit GA/GHD allar viðureignir sínar 3-0.  Eins mættust sveit GR og GKG II og vann sveit GR 2-1.

5. umferð

Í 5 umferð mættust sveit GA/GHD sveit GKG I og sigraði 2-1.  Eins GR og GK og vann GR þá viðureign líka 2-1.

Ljóst var því að Íslandsmeistaratitillinn var sveit GA/GHD er sveitin vann alla leiki sína og 10 innbyrðis viðureignir.  Sveit GR tók silfrið en sveitin vann alla leiki sína nema þann gegn GA/GHD og var með 7 innbyrðis sigra.  Í 3. sæti varð sveit GKGI með 6 innbyrðis sigra ; í 4. sæti sveit GK með 4 innbyrðis sigra og í 5. sæti sveit GKG II með 3 innbyrðis sigra.

Úrslitin eru sem sagt eftirfarandi:

1. sæti Sveit GA/GHD

2. sæti Sveit GR

3. sæti Sveit GKG I

4. sæti Sveit GK

5. sæti Sveit GKG II