Tom Watson skorar á allt bandaríska Ryder Cup liðið að taka klakaísvatns áskoruninni – Rickie Fowler einn þeirra sem hefir tekið áskoruninni!
Bandaríski Ryder Cup fyrirliðinn Tom Watson er nú einn þeirra sem tekið hefir klakaísvatns áskoruninni (ens. #icebucketchallenge) sem farið hefir eins og eldur í sinu um alla félagsmiðlana.
Áskorunin gengur út á að hella verður jökulköldu klakaísvatni yfir sig og að því loknu fá menn að skora á 3 aðra til að gera slíkt hið sama og ofan á allt saman verður að styrkja gott málefni.
Í Bandaríkjunum er með klakaísvatns áskoruninni aðallega verið að vekja athygli á, styrkja og safna fé fyrir sjúkdómi sem nefnist amyotrophic lateral sclerosis (ALS) eða Lou Gehrig’s veikin (eftir frægum hafnarboltamanna í New York Yankees, sem dó úr veikinni). Á íslensku nefnist ALS blönduð hreyfitaugungahrörnun og er eitt form hreyfitaugungahrörnunar MND (Motor Neuron Disease).
Í Bandaríkjunum einum hafa safnast $ 15 milljónir bara í síðasta mánuði samanborið við $1,8 milljón sem söfnuðust á sama tímabili á síðasta ári.
PGA.com birti myndskeið þar sem Tom Watson skoraði á allt Ryder Cup liðið (þann hluta sem fyrir liggur) að taka þátt í áskoruninni. Sjá má myndskeiðið með því að SMELLA HÉR:

Rickie Fowler í klakaísvatnsáskoruninni
Einn þeirra, Rickie Fowler hefir þegar orðið við því og skoraði hann m.a. á Keegan Bradley og varð hann við því og Bradley skoraði síðan m.a. á Dustin Johnson – sjá má myndskeið af því með því að SMELLA HÉR:
Ýmsir aðrir þekktir í golfheiminum hafa tekið klakaísvatnsáskoruninni t.a.m. Michelle Wie:

Michelle Wie í klakaísvatnsáskorun
Hér má sjá myndskeið af Tim Finchem, framkvæmdarstjóra PGA Tour sem tók klakaísvatns áskoruninni SMELLIÐ HÉR:
Watson missti vin sinn og kaddý til langs tíma Bruce Edwards, þegar sá dó úr ALS árið 2004, þannig að áskorunin hefir sérstaka skírskotun fyrir Watson.
Tiger, sem ekki er hluti Ryder Cup liðsins í ár, hefir þegar tekið áskoruninni en það gerði hann ásamt Rory McIlory í þætti Jimmy Fallon „The Tonight Show.“

- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
