PGA: Camilo Villegas vann 4. PGA Tour titil sinn – þann fyrsta frá 2010 – á Wyndham mótinu
Camilo Villegas sigraði á Wyndham Championship og er þetta fyrsti sigur hans á PGA Tour frá árinu 2010.
Villegas var á 7 undir pari, 63 höggum á lokahringnum og var samtals á 17 undir pari, 263 höggum (63 69 68 63). Hann hlaut $954,000 fyrir sigurinn og 500 FedEx Cup stig. i
Á fyrri 9 fékk Villegas 1 örn og 4 fugla og bætti síðan fugli við á par-5 15. holunni og lét forystu sína aldrei af hendi eftir það. Hann varð hins vegar að fylgjast með hinum ljúka keppni, en fyrir rest varð ljóst að hann hafði unnið 4. PGA Tour titil sinn og þann fyrsta frá sigri hans á Honda Classic árið 2010.
Bill Haas og Freddie Jacobson deildu 2. sætinu – Haas lék á 64 höggum en Jacobson 66 höggum.
Jacobson þarfnaðist pars til þess að knýja fram bráðabana, en 4 metra parpútt hans fór framhjá holunni … og Villegas sigurvegari.
Til þess að sjá lokastöðuna á Wyndham Championship SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 4. dags á Wyndham Championship SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
