Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2014 | 18:15

Íslandsbankamótaröðin 2014 (5): Aron Snær sigraði með miklum yfirburðum í piltaflokki!!!

Aron Snær Júlíusson, GKG, sigraði með miklum yfirburðum á 5. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, en mótið fór fram á Jaðarsvelli á Akureyri.

Aron Snær lék á samtals 3 yfir pari, 216 höggum (67 77 72) og setti m.a. nýtt vallarmet á fyrsta degi á Jaðrinum af hvítum teigum.  Hann var á besta skori allra sem léku 54 holur.  Þetta er 2. sigur Arons Snæs á Íslandsbankamótaröðinni í ár!!!

Í 2. sæti heilum 14 höggum á eftir Aroni Snæ varð klúbbfélagi hans Egill Ragnar Gunnarsson, GKG á samtals 17 yfir pari, 230 höggum (74 79 77).

Í 3.-4. sæti urðu síðan klúbbmeistari GA 2014, Ævarr Freyr Birgisson og Kristófer Orri Þórðarson, GKG, en báðir léku á samtals 18 yfir pari.

Sjá má lokastöðuna í piltaflokki á 5. móti Íslandsbankamótaraðarinnar hér að neðan:

1 Aron Snær Júlíusson GKG 1 F 39 33 72 1 67 77 72 216 3
2 Egill Ragnar Gunnarsson GKG 2 F 38 39 77 6 74 79 77 230 17
3 Ævarr Freyr Birgisson GA 5 F 42 36 78 7 75 78 78 231 18
4 Kristófer Orri Þórðarson GKG 1 F 37 37 74 3 73 84 74 231 18
5 Ernir Sigmundsson GR 6 F 38 40 78 7 73 81 78 232 19
6 Ottó Axel Bjartmarz GO 6 F 40 39 79 8 77 78 79 234 21
7 Eyþór Hrafnar Ketilsson GA 6 F 39 42 81 10 81 76 81 238 25
8 Björn Óskar Guðjónsson GKJ 4 F 41 36 77 6 83 81 77 241 28
9 Gunnar Smári Þorsteinsson GR 6 F 40 39 79 8 78 84 79 241 28
10 Vikar Jónasson GK 6 F 43 39 82 11 77 82 82 241 28
11 Birgir Björn Magnússon GK 2 F 43 40 83 12 81 82 83 246 33
12 Víðir Steinar Tómasson GA 6 F 39 42 81 10 79 90 81 250 37
13 Ásbjörn Freyr Jónsson GKG 8 F 47 39 86 15 79 86 86 251 38
14 Theodór Ingi Gíslason GR 6 F 41 39 80 9 85 86 80 251 38
15 Orri Bergmann Valtýsson GK 7 F 41 43 84 13 81 86 84 251 38
16 Tumi Hrafn Kúld GA 5 F 45 45 90 19 71 90 90 251 38
17 Sverrir Ólafur Torfason GKG 10 F 40 42 82 11 84 86 82 252 39
18 Arnór Harðarson GR 10 F 39 42 81 10 84 88 81 253 40
19 Bragi Arnarson GKJ 11 F 48 44 92 21 86 85 92 263 50
20 Þorkell Már Júlíusson GK 12 F 47 46 93 22 93 93 93 279 66
21 Daði Valgeir Jakobsson GBO 12 F 49 48 97 26 89 100 97 286 73
22 Þorsteinn Orri Eyjólfsson GKJ 19 F 52 55 107 36 87 99 107 293 80