Ragnar Már Garðarsson, GKG, á 1. teig á glæsilokahringnum á Egils Gull mótinu þar sem Ragnar Már setti nýtt vallarmet af hvítum teigum – 62 högg!!! Mynd: Golf 1 Ragnar Már lauk leik í 3. sæti á Brabants Open – Gísli Sveinbergs í 5. sæti!!!
Íslensku keppendurnir 5 hafa lokið keppni í Brabants Open, en mótið fór fram í Eindhovensche Golf, Valkenswaard, Hollandi, dagana 15.-17. ágúst 2014.
Ragnar Már Garðarsson, GKG, stóð sig best allra varð í 3. sæti á samtals 5 undir pari, 211 höggum (69 69 73).
Skammt þar á eftir varð Gísli Sveinbergsson, GK, en hann varð í 5. sæti á samtals 3 undir pari, spilaði jafnt og gott golf alla dagana (71 71 71).
Bjarki Pétursson, GB, deildi síðan 7. sætinu á sléttu pari, en lokahringurinn hjá honum var nokkuð úr takti við gott spil hans fyrstu 2 dagana (70 69 77).
Ísak Jasonarson, GK, náði sér aldrei á strik í mótinu og varð ekki meðal efstu 40.
Sjá má lokastöðuna í karlaflokki á Brabants Open með því að SMELLA HÉR:
Ásta Birna Magnúsdóttir, Lippstadt og GK tók einnig þátt í mótinu og náði ekki að vera meðal efstu 20.
Sjá má lokastöðuna í kvennaflokki í Brabants Open með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
