Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kjartan Dór Kjartansson – 15. ágúst 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Kjartan Dór Kjartansson. Kjartan Dór er fæddur 15. ágúst 1984 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Kjartan Dór er í Golfklúbbi Kópvogs og Garðabæjar (GKG).  Kjartani Dór hefir gengið vel í opnum mótum og eins spilaði hann á Eimskipsmótaröðinni. Kjartan Dór var t.a.m. í sigursveit GKG í 1. deild í sveitakeppni GSÍ 2012, Kjartan er búsettur í Svíþjóð og er trúlofaður Hörpu Kristinsdóttur og saman eiga þau 1 barn.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli eru:  Jack White, 15. ágúst 1873; Katy Harris (nýliði á LPGA 2012) 15. ágúst 1979 (35 ára); Elin Andersson, 15. ágúst 1983 (31 árs)

…. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is