Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2014 | 09:00

Gamla hús Rory til leigu

Gamla húsið hans Rory McIlroy á Norður-Írlandi er ekki til sölu – það hefir þegar verið selt – en er nú til leigu af nýja eigandanum Gary McCausland, sem keypti eignina af Rory fyrir u.þ.b. $3 milljóna (u.þ.b. 345 milljónir íslenskra króna).

McCausland sagði að hann hefði keypt eignina fyrir sig og fjölskyldu sína en nokkur eftirspurn ferðamanna hafi síðan verið eftir að fá að dvelja í húsi Rory.  Og af hverju ekki?  Húsið hefir allt til alls.

Skv. grein í Belfast Telegraph fygir húsinu einkatjörn, flóðlýstur tennisvöllur, einkabío, þyrlupallur, einkabílstjóri og heitur pottur með kampavíni á pottbrúninni.

McCausland er nú með húsið til leigu á 2.300.000,-  krónur á viku.  Frábært hús ef e-hv hefir efni á þessu í VIKU!!!

Eignin er einkar hugguleg að kvöldlagi s.s. sjá má á mynd hér að neðan:

1-Rory-hús-kvöld