Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2014 | 12:00

Tiger ekki áhugaverðasti kylfingurinn

Victor Contreras er golffréttamaður á fréttamiðli sem heitir sacbee.com og er í raun stytting á Sacramento Bee, enda greinarnar oft „stingandi.“

Hér fer grein eftir hann um Tiger Woods í lauslegri þýðingu:

„Einu sinn var sá tími þegar  Eldrick Tont “Tiger” Woods var álitinn „Áhugaverðasti maðurinn í golfheiminum.“

Kylfusveinar tippsuðu hann hvenær sem þeir máttu bera poka hans.

Golfdómarar báðu hann um ráð þegar þeir felldu dóma sína.

Augusta National Golf Club í Georgia var að hugsa um að breyta nafni á árlegu risamóti sínu einfaldlega í: „the Woods.“

Sú goðsögn er í gangi um hann (Tiger) að hann hafi eitt sinn stokkið um borð í skip til Hong Kong á leið sinni til Tíbet, þar sem Dalai Lama – í flæðandi skikkju,  í allri sköllótri tign sinni… var kaddý Tiger.

Tiger tippsaði hann auðvitað ekki en sá til þess að Dalai Lama myndi hljóta „algera meðvitund“ (total consciousness) á dánarbeði sínu.

Þannig að Lama-inn fékk það sem hann stefnir að, sem er ágætt.

En frá þeim tíma að Tiger hefir ekki að sigra í risamóti frá árinu 2008, þá hefir golfleikur hans orðið álíka áhugverður og vökvun púttflatar.  Það eru allsstaðar „holur“ ef ekki glompur í golfleik hans.

Þrjátíu og átta ára brotinn líkami hans er ekki fær um að hafa fullu í tré við huga hans og þetta snýst ekki lengur um hvort Tiger sigri í mótum eða  hvort hann sé nógu frískur að taka þátt; þetta snýst um hvort  honum takist að klára 4 daga mót án þess að draga sig úr því .

En þrátt fyrir allt þá segir Ryder Cup fyrirliðinn Tom Watson að hann sé að athuga hvort Tiger verði í liði hans. Skiptir þá engu þó Tiger sé í 71. sæti yfir þá sem eru með flest stig á bandaríska Ryder Cup stigalistanum 2014.

Watson segist ekki vera reiðubúinn að skella hurðum á Tiger, einfaldlega vegna þess að hann er Tiger Woods.

Jamm …. en hann er ekki lengur „Mest áhugaverði maðurinn í golfheiminum.“

Þann titil nú á ….. Rory McIlroy.