Skrúður 3. brautin á Garðavelli, Akranesi, öðrum uppáhaldsgolfvalla Guðmundar.
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2014 | 15:45

Eimskipsmótaröðin 2014 (6): Næsta mót verður um næstu helgi – skráningarfrestur framlengdur

Um næstu helgi fer fram á Garðavelli Akranesi sjötta mót Eimskipsmótaraðarinnar, en mótið er það næst síðasta á þessu ári.

Mótstjórn hefur ákveðið að framlengja skráningarfrestinn, enda misstu margir kylfingar af skráningu vegna þátttöku í sveitarkeppnum GSÍ .

Kylfingar eru hvattir til að skrá sig í mótið og minnir GSÍ á að Garðavöllur er í frábæru standi og sannarlega tilbúinn til að taka á móti bestu kylfingum landsins.

Hægt er að skrá sig í mótið með því að SMELLA HÉR: