Rickie Fowler – Rory telur að flestir í Ryder Cup liði Evrópu vilji mæta Fowler í viðureign
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2014 | 09:00

Rickie Fowler: „Rory er besti kylfingur heims engin spurning“

Þeir sem eru tapsárir í golfi og hegða sér eins og óhemjur þegar eitthvað gengur ekki sem skyldi á golfvellinum ættu að taka sér Rickie Fowler til fyrirmyndar.

Fowler er eflaust tapsár, en ber sig eins og sönn hetja og heiðursmaður.  Hann deildi 3. sætinu ásamt Henrik Stenson, á PGA Championship 2014.

Í viðtali eftir að 3. sætið var í höfn sagði Rickie m.a.: „… Rory er besti kylfingur heims engin spurning.“

„Augljóslega lék Rory frábærlega þessa vikuna og hann hefir unnið verðskuldaða sigra í þessum síðustu 3 mótum.“

„En ég ætla að sjá til hvort mér tekst ekki að stela einum [risamóts] sigri af honum á einhverjum punkti.“

Rickie er einn af aðeins 3 kylfingum nú í ár sem hefir verið í topp-5 á öllum 4 risamótum ársins, þannig að þessi ósk hans um að „stela“ risamótssigri af Rory er ekkert svo fjarlæg. Reyndar ætti  að orða þetta öðruvísi: Þegar athugið þegar en ekki ef honum tekst loks að sigra á risamóti verður það verðskuldað!

Aðeins Jack Nicklaus og Tiger Woods hefir tekist það sem Rickie hefir tekist á þessu ári og Rickie skrifaði stoltur um það á Twitter:
„Looking back…petty [sic] cool to join @TigerWoods and @jacknicklaus as the only three to have finished top 5 in all 4 majors in the same year,“ tvítaði hann (Lausleg þýðing: „Þegar horft er aftur þá er ansi svalt að vera einn af þremur ásamt Tiger og Jack Nicklaus sem lokið hafa keppni meðal efstu 5 í öllum 4 risamótum á sama ári).

Varðandi það að vera enn einu sinni svo nálægt sigri sagði Fowler m.a. við blaðamenn: „Mér fannst virkilega eins og ég gæti unnið þetta (risamót).“

„En ég get litið aftur á risamótin í ár og lært margt af leik mínum á þeim.“