Rory: Trúlofunarslitin við Wozniacki ástæða velgengni minnar
Rory McIlroy trúir því að slit trúlofunar hans og Caroline Wozniacki sé ástæða velgengi hans nú þegar hann stefnir að því að auka enn forskot sitt á PGA Championship risamótinu.
Hann er með 1 höggs forystu á þá Jason Day og Jim Furyk, nú þegar 3. hringur mótsins er hafinn á Valhalla golfvellinum í Kentucky og vonast eftir að vinna 2. risamótið sitt á sama ári.
Rory sleit trúlofun sinnn við fyrrum nr. 1 í tennisnum, Caroline Wozniacki deginum fyrir BMW PGA Championship og þrátt fyrir að fæstum hafi órað fyrir því þá, tókst honum að sigra í því móti.
Síðan þá hefir hann jafnframt sigrað í Opna breska risamótinu og Bridgestone Invitational heimsmótinu og hefir endurheimt 1. sætið á heimslistanum.
Hann segir að gott form hans þessa dagana á golfvellinum sé trúlofunarslitum sínum við Wozniacki að þakka.
„Ég hugsa að það sem gerðist hafi verið betra fyrir mig golflega séð,“ sagði Rory aðspurður hverju hann þakkaði gott gegni sitt á golfvellinum í ár.
„Ég hef varið meiri tíma í æfingar og einbeiti mér nú algerlega að því (golfinu); ég meina hvað annað hef ég við tíma minn að gera nú?
„Líf mitt er golfvöllurinn og síðan ræktin.“
„Ég hef unnið ansi mikið áðu en síðustu mánuði hef ég virkilega grafið sjálfan mig í leiknum. Það er augljóslega að virka ansi vel, þannig að ég ætla að halda þessu áfram.“
Þriðji hringurinn á PGA Championship er hafinn og má fylgjast með gengi Rory (hann fer út síðastur eftir 1 klst og 10 mín) og hinna með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
