Giulia Molinaro næsta golfstjarna Ítala?
Giulia Molinaro hefir vakið athygli á sér fyrir góðan leika á Meijers LPGA Classic í Michigan.
Hún er í hálfleik mótsins í 10. sæti á samtals 4 undir pari, aðeins 6 höggum á eftir forystukonunni Inbee Park.

Giulia Moninaro er góður sendiherra Kenya, því þótt ítösk sé kynnir hún landið sem hún ólst upp í, Kenya, hvert sem hún fer.
Giulia fæddist 23. júlí 1990 og er því nýorðin 24 ára. Hún á sér nokkuð sérstaka ævi en aðeins nokkurra mánaða gömul fluttist hún til Kenya með foreldrum sínum, þar sem faðir hennar var að flýja herskyldu á Ítaliu, en hann kaus fremur að ljúka læknanámi sínu í Afríku heldur en að fara í herinn.
Hér má sjá góða grein um þennan hlut ævi Molinaro, í góðri grein SYMETRA SMELLIÐ HÉR:
Eins má sjá viðtal LPGA við hana, en hún er að vekja heilmikla athygli fyrir góðan leik sinn á Meijers eins og segir SMELLIÐ HÉR:
Molinaro byrjaði annars að spila golf 12 ára. Hún er í ítalska golflandsliðinu og hefir m.a. tekið þátt í Junior Ryder Cup. Molinaro var frá 18 ára aldri í bandaríska háskólagolfinu, en hún lék með liði Arizona State (var það m.a. valin PAC 12 Player of the Year (2012); First team All-American (2012) og PAC 12 First Team (2012).
Árið 2012 útskrifaðist Molinaro frá Arizona State og strax árið eftir, 2013 var hún farin að spila í 2. deild LPGA – Symetra Tour, þar sem hún er enn.
Meðal áhugamála Molinaro eru kvikmyndir, flugdrekar, tónlist og ljósmyndun.
Það verður áhugavert að fylgjast með þessari snjöllu, ítölsku stúlku í framtíðinni!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
