Steve Stricker.
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2014 | 08:00

Steve Stricker útnefndur varafyrirliði bandaríska Ryder Cup liðsins

Fyrirliði Ryder Cup liðs Bandaríkjanna Tom Watson útnefndi Steve Stricker, sem 3. aðstoðarfyrirliða sinn í Ryder bikarskeppninni, sem fram fer í næsta mánuði þ.e. í Gleneagles, Perthshire, Skotlandi,  26.-28. september n.k.

Stricker, 47 ára, er varafyrirliði ásamt þeim  Andy North og Raymond Floyd.

Stricker hefir verið leikmaður í síðustu 3 Ryder bikarsliðum þ.á.m. því bandaríska liði sem sigraði síðast í Valhalla 2008 og eins hefir Stricker leikið í 5 Forsetabikarsliðum, með rekorð upp á 14-10-0.

„Það sem Steve hefir til brunns að bera er hversu vel hann þekkir leikmennina sem eru á túrnum núna,“ sagði Watson. „Hann hefir keppt við þá, spilað við þá, spilað með þeim í Ryder bikarnum og Forsetabikarnum. Þannig að hann kemur með mikinn skilning á þessum leikmönnum og hæfileikum þeirra.“

Stricker sem kemur frá  Edgerton, Wisconsin og hefir sigrað á 12 PGA Tour mótum.   Hann hefir 5 sinnum verið meðal efstu 10 í 4 risamótum golfsins þ.á.m. varð hann í 2. sæti í PGA Championship 1998.

„Það er ekki endanlega búið að setja saman liðið, þannig að strákarnir sem ekki komast sjálfkrafa í liðið er mjög spenntir að spila og eru að reyna að vinna þau stig sem á vantar í þessari viku (þ.e. á PGA Championship risamótinu).   Það eru svo margir góðir leikmenn og hver sem verður í liðinu mun svo sannarlega hafa unnið fyrir veru sinni þar.“

9 leikmenn (þeir sem komast sjálfkrafa í liðið) liggja fyrir nú á sunnudaginn að loknu PGA Championship.  Watson mun síðan tilkynna um þá 3 sem hann velur í lið sitt (val fyrirliða) 2. september n.k.