„Gullkistuvíkin“ par-3 5. brautin á Brautarholtsvelli – ein besta par-3 hola á Norðurlöndum skv. „The Finest“ og völlurinn í 40. sæti skv. hinu virta Golf Digest!!!. Brautarholtið er í uppáhaldi hjá Huldu Clöru. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2014 | 12:00

GBR: Rafn Sigurðsson sigraði á GB Ferðir Open

Golfklúbbur Brautarholts hélt nú um Verslunarmannahelgina, GB Ferðir Open, þ.e.  laugardaginn 2. ágúst 2014.

Mótið var 18 holu punktakeppni og þátttakendur 53; 50 karl- og 3 kvenkylfingar.   Kepnnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og mótið hið glæsilegasta í alla staði.

Sigurvegarar voru eftirfarandi:

1.sæti Rafn Sigurðsson, GOS 39 pkt. – Hann hlaut gjafabréf frá GB Ferðum að verðmæti kr. 110.000 og 5 skipta aðgangur á golfvöllinn í Brautarholti, sjá nánar á; www.gbferdir.is

2.sæti Jónas Gunnarsson, GR, 38 pkt. – Hann hlaut inneignarkort í golfverslun að verðmæti kr. 10.000 og 5 skipta aðgangur á golfvöllinn í Brautarholti

3.sæti Þorsteinn Svanur Ólafsson, GLK, 36 pkt. – Hann hlaut inneignarkort í golfverslun að verðmæti kr. 5.000 og 5 skipta aðgangur á golfvöllinn í Brautarholti

Eins voru veitt nándarverðlaun á  2/11 og 8/17 braut, sem voru  Titleist NXT Tour golfboltar (12 stk