Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2014 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Elías Björgvin Sigurðsson – 22. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Elías Björgvin Sigurðsson. Elías Björgvin er fæddur 22. maí 1997 og því 17 ára í dag. Hann er í Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Elías Björgvin er auk golfsins í handbolta og er aðstoðarþjálfari HK.

Foreldrar Elíasar Björgvins eru Ragnheiður Elíasdóttir og Sigurður Egill Þorvaldsson.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér fyrir neðan:

Elías Björgvin Sigurðsson (17 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
 Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Horton Smith, f. 22. maí 1908- d. 15. október 1963) ; Gwladys Nocera, 22. maí 1975 (39 ára)  ….. og ……l
Hildur Gylfadóttir, GK  (47 ára)

Geir Gunnarsson (62 ára)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is