9 afmælisgjafahugmyndir fyrir Tiger
Tiger Woods á afmæli á morgun – verður 38 ára! Vefsíða nokkur birti 9 afmælisgjafahugmyndir fyrir Lindsey um hvað hún gæti gefið Tiger í afmælisgjöf. Frábært að eiga afmæli 30. des …. og fá að opna enn fleiri pakka!!!
Hér koma afmælisgjafahugmyndirnar:
Nr. 1 38 ára afmælisbolur
Nr. 2 Íkornagildra
Í forsetabikarskeppninni setti Lindsey íkorna á bak Tiger, sem öllum fannst voða fyndið …. nema Tiger. Sjá myndskeið frá þessari uppákomu með því að SMELLA HÉR: Gjöfin er meira táknræn til að bæta fyrir fyrri misgjörðir.
Nr. 3 Skíðatímar í Vail
Tiger og Lindsey hafa sést á skíðum saman og Lindsey upplýsti í viðtali að Tiger vildi gjarnan bæta skíðakunnáttuna. Lindsey er skíðagoðsögn í Vail, sem er heimsklassa skíðastaður og vinir hennar þar myndu eflaust taka Tiger í nokkra tíma.
Nr. 4 Under Armour úlpu
Ef Tiger á að koma til Sochi að fylgjast með kærustunni á skíðum á Ólympíuleikunum verður hann að gera það með stæl! Lindsey er með auglýsingasamning við Under Armour og því ætti að vera auðvelt fyrir hana að fá s.s. eina dumbrauða, hlýja Under Armour úlpu fyrir Tiger, sem klæða myndi hann vel, svo honum sé nú hlýtt meðan að hann fylgist með henni!
Nr. 5 Tiger hettupeysa
Undir úlpunni þarf Tiger að vera í einhverju hlýju og hvað er betra en hettupeysa með tígrisdýra eða „Tiger“ mynd?
Nr. 6 Kassi af Red Bull orkudrykk
Svo Tiger haldist orkumikill!
Nr. 7 Miðar á Rose Bowl
Miðar á Rose Bowl ruðningsboltaleik myndu eflaust gleðja Tiger, en hann fylgist gjarnan með bandaríska ruðningsboltanum og í ár er félagið hans Stanford að keppa.
Nr. 8 Tvíhneppt jakkaföt
Eftir að Lindsey sigrar 1-2 Ólympíumedalíur verður þeim skötuhjúum eflaust boðið í margar fínar veislur og því mikilvægt að Tiger glansi við hlið hennar.
Nr. 9 Mercedes Benz S-65 árg. 2015
Stuttu eftir að þau Tiger og Lindsey tilkynntu um að þau væru saman nú í vor hoppaði Tiger upp í Mercedes Benz S-65. Kannski Lindsey ætti bara að gefa honum 2015 árgerðina af bílnum í afmælisgjöf. Sjá má kynningarmyndskeið af bílnum með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024






