Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2014 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólafur Hjörtur Ólafsson- 7. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Ólafur Hjörtur Ólafsson. Ólafur Hjörtur er fæddur 7. febrúar 1979 og því 35 ára í dag. Hann er í Golfklúbbi Akureyrar (GA). Ólafur Hjörtur  í sambúð með Elvu Rósu Helgadóttur. Komast má á facebook síðu afmælisbarnsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Ólafur Hjörtur Ólafsson 35 ára (Innilega til hamingju með afmælið!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jeppe Huldahl, 7. febrúar 1982 (32 ára); Holly Clyburn, 7. febrúar 1991 (23 ára) ….. og …..

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is